Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að það komi honum ekki á óvart þær fjöldauppsagnir sem hafa átt sér stað í íslenska bankakerfinu undanfarið. Segir hann að tækniþróunin hafi haft þau áhrif að mannshöndin komi æ minna fyrir í starfsemi bankana og að tölvuvæðingin eigi jafnvel eftir að verða meiri en nú er.
„Fjármálakerfið er búið að vera fækka störfum linnulítið frá hruni og það endurspeglar þær mjög miklu breytingar í fjármálaþjónustu, sem mun halda áfram. Þessi þróun, því miður verður maður að segja, er bara partur af þessari tækniþróun sem er að eiga sér stað. Það er að verða meiri sjálfvirknivæðing, við reiðum okkur miklu minna á útibú eins og við gerðum áður. Mikið af þeirri þjónustu sem við notumst við innan bankakerfisins er að verða sjálfvirk í gegnum tölvur og mannshöndin kemur þar lítið nærri. Það er þannig að svona sveiflur ganga atvinnugreinar í gegnum og þetta er náttúrulega bara partur af stærra samhengi í þeirri tækniþróun sem við horfum heilt yfir til næstu ára og áratuga. En ég held að út af fyrir sig komi þessar fréttir ekki eitthvað sérstaklega á óvart.“
Þorsteinn var gestur í þættinum Stóru Málin, sem sýndur er hér á Hringbraut, ásamt Brynjari Níelssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Þorsteinn segir einnig að íslenskt bankakerfi sé ekki samkeppnishæft við nágrannalönd okkar.
„Kerfið er náttúrulega stórt og það hefur verið bent á það að það sé hreinlega of stórt og dýrt enn þá, í samanburði við til dæmis erlenda banka. Það er mjög kostnaðarsamt bankakerfið hér. Í raun og veru ekki samkeppnishæft bankakerfi við nágrannalönd okkar,“ sagði Þorsteinn.
Þegar Brynjar Níelsson var spurður að því sama sagði hann: „Ég tek undir allt það sem Þorsteinn segir, enda var hann í Sjálfstæðisflokknum.“
Hér að neða má svo sjá þáttinn Stóru Málin í heild sinni.