Samherji hefur sent frá sér tilkynningu vegna starfsemi fyrirtækisins í Afríku. Þar kemur fram að fyrirtækið hafi ráðið lögmannstofuna Wikborg Rein í Noregi til að gera ítarlega rannsókn á starfsemi fyrirtækisins í Afríku.
„Við höfum orðið þess áskynja að fyrrverandi stjórnandi Samherja í Namibíu, Jóhannes Stefánsson, hafi farið til fjölmiðla og lagt fram alvarlegar ásakanir á hendur núverandi og fyrrverandi stjórnendum Samherja. Við tökum þessu mjög alvarlega og höfum ráðið alþjóðlegu lögmannsstofuna Wikborg Rein í Noregi til að framkvæma ítarlega rannsókn á starfseminni í Afríku. Þar til niðurstöður þeirrar rannsóknar liggja fyrir munum við ekki tjá okkur um einstakar ásakanir.“
Kveikur, fréttaskýringarþáttur á RÚV, mun fjalla ítarlega annað kvöld um viðskipti Samherja í Afríku. Samherji segist hafa óskað eftir að setjast niður með RÚV og ræða komandi umfjöllun um málið en þeir segja að þeirri beiðni hafi verið neitað. RÚV segir að forsvarsmenn Samherja hafi neitað að ræða við þá fyrir framan myndavélar.
„Við höfum sérstaklega óskað eftir að fá að setjast niður með Ríkisútvarpinu og fara yfir upplýsingar sem við teljum skipta máli í tengslum við fyrirhugaða umfjöllun. Þeirri beiðni hefur jafnharðan verið hafnað og hefur Ríkisútvarpið aðeins talið sér fært að ræða við okkur fyrir framan myndavélar. Teljum við þær upplýsingar sem við búum yfir vera með þeim hætti að slíkt væri tillitslaust vegna hagsmuna þeirra einstaklinga sem málið varðar.“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja segist ekki ætla að sitja undir röngum og villandi ásökunum.
„Öll starfsemi Samherja og tengdra félaga var undir ítarlegri rannsókn árum saman án þess að nokkuð athugavert hafi fundist. Var allt okkar bókhald, tölvupóstar og öll önnur gögn skoðuð ítarlega, þar með talið þeirra félaga sem sinntu útgerð við strendur Afríku frá árinu 2007. Við munum ekki nú, frekar en þá, sitja undir röngum og villandi ásökunum frá fyrrverandi starfsmanni sem enn á ný eru matreiddar af sömu aðilum og fjölmiðlum og í Seðlabankamálinu,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Samherji segist hafa sent fyrrverandi rannsóknarlögreglumann hjá sérstökum saksóknara til að skoða starfsemi fyrirtækisins í Namibíu árið 2016, eftir að vísbendingar um að allt hafi ekki verið á hreinu varðandi starfsemina þar.
„Það sem við teljum rétt að koma á framfæri á þessum tímapunkti er að þegar við urðum þess áskynja í ársbyrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstrinum í Namibíu sendum við fyrrverandi rannsóknarlögreglumann hjá sérstökum saksóknara til Namibíu. Eftir nokkurra mánaða vinnu hans var niðurstaðan að segja umræddum starfsmanni upp störfum án tafar vegna óásættanlegrar framgöngu hans og hegðunar. Mikill tími hefur farið í að ná tökum á rekstrinum en starfsmaðurinn fyrrverandi hefur samhliða, beint og ásamt samstarfsmönnum sínum, krafist hárra fjárhæða frá Samherja.“
Fyrirtækið segist fara eftir öllum lögum og reglum í Namibíu og vinni náið með stjórnvöldum í Namibíu.
„Samherji hefur lagt sig fram um að vinna í samræmi við lög og reglur sem gilda í þeim löndum sem félagið starfar í. Höfum við í því samhengi unnið náið með stjórnvöldum í Namibíu, bæði með skattyfirvöldum og Seðlabanka Namibíu. Má þar nefna að frá síðari hluta árs 2016 hefur öllum virðisaukaskattskyldum fyrirtækjum í Namibíu verið skylt að fara í gegnum ítarlega skoðun hjá skattyfirvöldum á tveggja mánaða fresti þar sem allir reikningar eru yfirfarnir. Á það við um okkar félög eins og öll önnur fyrirtæki í Namibíu.“