Þorsteinn Theodórsson lést á sunnudaginn, 79 ára að aldri. Þorsteinn og reynsla hans var umfjöllunarefni íslensku heimildarmyndarinnar Ránsfengur (\"Ransacked\") um afleiðingar hrunsins sem frumsýnd á RIFF árið 2016. Myndin var tilnefnd til Edduverðlaunana og hefur verið sýnd og unnið til verðlauna í Bandaríkjunum, Evrópu og á Indlandi.
Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar Pétur Einarsson tilkynnti frá andláti Þorsteins í umræðum sem fram fóru áður en myndin var frumsýnd í Osló í gærkvöldi. Pétur var forstjóri Straums árin 2011 til 2013 og veitti meðal annars útibúi Glitnis í London forstöðu.
Myndin segir frá því hvernig hrun bankanna hefur áhrif á venjulegan Íslending. Þorsteinn missir fyrirtæki sitt og nánast lífið í kjölfar hrunsins 2008 en með hjálp dóttur sinnar, Theodóru Þorsteinsdóttir fer hann í mál við bankana.
Fréttin birtist fyrst á vefsíðunni www.nyjaisland.no og einnig á www.dv.is .