Þorsteinn telur þjóðarsjóð óþarfan

Upp­bygging svo­kallaðs Þjóðar­sjóðs er ó­þörf að mati Þorsteins Víglundssonar, þingmanns Viðreisnar. Þetta kemur fram í nefndaráliti annars minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem Þorsteinn er í forsvari fyrir, vegna frum­varps Bjarna Benediktssonar fjár­mála- og efnahagsráðherra um Þjóðarsjóð. Fréttablaðið greinir frá.

Í álitinu segir hann að um sé að ræða tekjur af sjálf­bærum auð­lindum, orkunni, en ekki ósjálf­bærum eins og í til­fellum annarra þjóðar­sjóða. Nefnir Þorsteinn í því samhengi olíu­sjóðinn norska. Því telur hann að tekju­streymi vegna auð­lindanna taki ekki enda í fyrir­sjáan­legri fram­tíð.

Auk þess segir hann líf­eyris­kerfi lands­manna þegar fjár­magnað með sjóð­söfnun. Lífeyriskerfið hérlendis sé með því öflugasta á al­þjóða­vísu enda nemi eignir lífeyrissjóðanna tæp­lega tvö­faldri lands­fram­leiðslu. Nefnir Þorsteinn að það sé eitt hæsta hlut­fall í heimi.

Einnig sé gjald­eyris­vara­forði Seðla­banka Ís­lands öflugur. Upp­bygging forðans hafi farið fram hér á landi og á­vöxtun hans verið góð. Því telur Þorsteinn ekki þörf á að byggja upp þjóðar­sjóð til að styrkja gjald­eyris­vara­forðann frekar.

Þá bendir hann á að lög um opin­ber fjár­mál eigi að tryggja að stjórn ríkis­fjár­mála sé ávallt með þeim hætti að ríkis­sjóður sé ­fær um að takast á við tíma­bundin á­föll. Þorsteinn segir það hag­kvæmara að láta við­bótar­tekjur greiða niður ó­fjár­magnaðar lífeyris­skuld­bindingar, en þær nema rúmum 600 milljörðum króna að svo stöddu.