Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra ræðir Evrópumálin og stöðu Sjálfstæðisflokksins í stjórnmála- og fréttaskýringaþættinum Þjóðbraut sem Páll Magnússon stýrir á Hringbraut í kvöld. Margs er að spyrja þegar jafn þrautreyndur og virtur stjórnmálamaður og Þorsteinn á í hlut, s.s. um fiskveiðistjórnun og komandi kjarasamninga en Þorsteinn var framkvæmdastjóri forvera Samtaka atvinnulífsins um árabil áður en hann settist á þing. Þá mun Páll ræða einnig við Heiðar Má Guðjónsson hagfræðing og Ásmund Einar Daðason þingmann um þrotabú gömlu bankanna, hvort og hvernig eigi að sækja þangað fjármuni - og hvort setja eigi þá í gjaldþrot. Þátturinn er frumsýndur kl. 21.00 í kvöld og er eins og allt annað efni Hringbrautar í ólæstri dagskrá, áhorfendum að kostnaðarlausu. Hægt er einnig að nálgast alla Þjóðbrautarþættinum undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is.
Þorsteinn talar um flokkinn
Fleiri fréttir
Nýjast