Þorsteinn pálsson veiddi gæslumenn gjafakvótans í gildru

Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra,  tókst ætlunarverk sitt þegar hann fékk fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknar til að lýsa því yfir að þeirra hlutverk væri að gæta þess að engar breytingar yrðu gerðar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

 

Sjávarútvegsráðherra skipaði nefnd með fulltrúum allra flokka um stjórnun fiskveiða sem ætlað var að leita sátta um framtíðarskipan kerfisins. Þorsteinn Pálsson var formaður nefndarinnar. Frá Sjálfstæðisflokki átti Teitur Björn Einarsson alþingismaður sæti í nefndinni en Páll Jóhann Pálsson frá Framsókn. Hann er fyrrverandi þingmaður flokksins og einn af eigendum Vísis í Grindarvík.

 

Nefndin átti að skila af sér tillögum til ráðherra fyrir 1. desember nk. Þar sem um sáttanefnd var að ræða þurfti að finna sameiginlegan flöt og sáttatón. Það tókst ekki því fulltrúi Sjálfstæðisflokksins gaf það út fyrir nokkru að flokkurinn tæki ekki þátt í neinum tilslökunum frá núverandi fyrirkomulagi ef þær leiddu til hærri auðlindargjaldagjalda í ríkissjóð frá sjávarútveginum. Teitur Björn kom því skýrt til skila í nefndinni að Sjálfstæðisflokkurinn stæði vörð um algerlega óbreytt kerfi og væri ekki til í neinar tilslakanir. Hagsmunir eigenda sjávarútvegsfyrirtækja gengju fyrir.

 

Þorsteinn Pálsson, formaður nefndarinnar, mat stöðuna þá þannig að ástæðulaust væri að halda starfi nefndarinnar áfram og tilkynnti sjávarútvegsráða það bréflega að nefndin hefði hætt störfum. Hann gerði bréfið síðan opinbert.

 

Ætla má að Þorsteinn hafi haft í huga að fá fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknar til að gangast við því að þeirra flokkar væru ekki til í neinar tilslakanir og tækju sérhagsmuni eigenda sjávarútvegsfyrirtækja framyfir heildarhagsmuni þjóðarinnar. Bæði Teitur Björn Einarsson og Páll Jóhann gengu beint í gildru Þorsteins og staðfestu í fjölmiðlum að flokkar þeirra hefðu sérhagsmuni útgerðar áfram í fyrirrúmi.