Lagasetningin um meðferð á svonefndum aflandskrónum dró fram athyglisverða pólitíska samstöðu.
Eitt er að enginn snerist gegn þeirri tæknilegu lausn á þeim fortíðarvanda sem lögin taka til. Hitt er að allir flokkar lýstu yfir stuðningi við afnám fjármagnshafta og hindrunarlausa flutninga fjármagns milli landa. Það eru ef til vill ekki ný tíðindi. En það segir eigi að síður nokkra sögu að um grundvallaratriði af því tagi skuli ríkja eining frá ystu mörkum til vinstri að ystu mörkum til hægri.
Í raun og veru þýðir þetta að allir þingflokkar eru fylgjandi því að gengi krónunnar ráðist á opnum alþjóðlegum markaði. Engin önnur meðul eru þá notuð til að hafa áhrif á gengi krónunnar en markaðsþátttaka Seðlabankans.
Í reynd eru fullveldisráðin yfir gjaldmiðlinum að þessu marki flutt út á þennan alþjóðlega markað.