Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og pisltahöfnundur á hringbraut.is segir að staða iðnmenntaðs fólks hafi versnað með undirritun samninga á almenna markaðnum í gær. Þar tekur hann undir orð formanns Félags vélstjóra og málmtæknimanna sem kallar samningana aðför að því að fólk mennti sig.
Þetta kom fram í þættinum Í vikulokin á Rás 1 í morgun, en Þorsteinn og Vigdís Hauksdóttir þingmaður voru þar gestir.
Þorsteinn Pálsson sagði að með launahækkun til lækna hafi verið stigið skref sem ekki sé hægt að horfa framhjá og ríkið geti ekki látið aðrar háskólamenntaðar stéttir sitja eftir.
„Hluti og ekki kannski minnstur hluti af þeirri spennu sem magnaðist upp fyrir þessa kjarasamninga fólst í því að launastiginn hefur verið að þjappast saman. Þar á meðal hefur staða til að mynda iðnmenntaðs fólks og háskólamenntaðs fólks versnað í samanburði við aðra,“ sagði Þorsteinn.
Vigdís sagði ekki geta tekið undir þessa gagnrýni, því það hafi verið kallað eftir því að hækka lágmarkslaun í 300 þúsund krónur. Þetta sé því alger tvískinningur.