Þorsteinn og margrét í helginni

Það mátti heyra hláturgusurnar ganga fram og aftur við upptökur á þætti Karls Ágústs Úlfssonar, Helginni þegar gestir hans voru að koma sér fyrir og búa sig undir skemmtilegan þátt í dag.


Og nefndir gestir eru ekki af verri endanum, grínistinn Þorsteinn Guðmundsson sem þarf ekki annað en að sjást í mynd að áhorfandinn kemst í gott skap og Margrét Erla Maack sem titlar sig sirkusdýr en hún hefur líka getið sér gott orð fyrir magadans fyrir nú utan að stjórna hvorki meira né minna en Sirkusi Íslands ásamt öðrum.


Áhorfendur mega engan veginn missa af byrjun þáttarins en þar dregur þáttastjórnandinn samfélagið og helstu persónur þess og leikendur saman í háði og spéi svo undan verkjar í hláturvöðvunum.


Helgin er frumsýnd klukkan 20.00 í kvöld.