Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja og Heiðar Guðjónsson, titlaður fjárfestir, eru í hópi þeirra sem helst standa fyrir virkjun ósnortinnar náttúruperlu í Bárðardal, veiðiárinnar Svartár.
Ríkisútvarpið sagði frá áformum um virkjunina í síðustu viku.
Í úttekt Fréttablaðsins í dag koma fram þungar áhyggjur náttúruverndarsinna af fyrirhugaðri virkjun. Hefur Veiðimálastofnun lýst áhyggjum af áhrifum lítilla virkjana í nýrri skýrslu.
Ekki þarf að fara fram umhverfismat vegna Svartárvirkjunnar þar sem lög segja að virkjanir undir 10 MW séu undanþegnar. Svartárvirkjun er áætlað 9,8 megawött. Heimildir Hringbrautar herma að mjög skiptar skoðanir séu með áformin í héraði og meðal sveitarstjórnarfulltrúa í Þingeyjarsveit. Verðlaunakvikmyndin Hrútar var tekin upp nálægt því svæði sem um ræðir.
Verkkaupandi er SBS Orka ehf, en kynningarferli hófst í september skv. Fréttablaðinu. Auðmenn að baki SBS Orku ehf eru Íslandsvirkjun ehf með 35% hlut. Pétur Bjarnason og Auðunn Svafar Guðmundsson eru að sögn Fréttablaðsins bak við hana. Ursus ehf á 30% hlut, allt í eigu Heiðars Guðjónssonar sem jafnframt er stjórnarformaður SBS Orku. Þá á Traðarsteinn ehf 30% hlut í SBS Orku. Þar eiga Þorsteinn Már Baldvinsson og fyrrum eiginkona hans, Helga Guðmundsdóttir helming hvort.
Fréttablaðið segir að framkvæmdin muni hafa áhrif á friðlýst svæði Laxárrdals.
Verkís hefur unnið mat á breytingum í umhverfinu vegna virkjunarinnar og telur þær óverulegar. Jón Aðalsteinn Þorgeirsson listamaður, Sigbjörn Kjartansson arkitekt og Baldur Sigurðsson hafa aftur á móti sent frá sér greinargerð þar sem þeir telja að áhrif virkjunarinnar verði óbætanlegt tjón en þeir hafa allir veiðireynslu í ánni.
„Þessi sannkallaða hálendisvin mun bera óafturkræft og óbætanlegt tjón af fyrirhuguðum framkvæmdum. Svartá verður tekin að mestu leyti úr farvegi sínum á rúmlega þriggja kílómetra kafla, nánast þurrkuð upp. Búsvæði skordýra, fugla og fiska munu skerðast, sem hefur veruleg neikvæð áhrif á lífsafkomu þeirra.“
Áhrif útgerðarmanna og burðaraðila í atvinnulífi í virkjanamálum hafa vaxið á síðustu árum. Í Skagafirði á Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri KS, hlut í landi sem til stendur að virkja og gæti orðið uppsretta mikils auðs síðar, fari svo að pólitíkin verði fjárfestunum hliðholl.
(Fréttaskýring: Björn Þorláksson)