Þorsteinn már hættir sem stjórnarformaður framherja í færeyjum

Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, hefur hætt sem stjórnarformaður í færeyska útgerðarfélaginu Framherja. Ákvað stjórn fyrirtækisins að Árni Absalonsen myndi taka sæti Þorsteins Más í stjórninni. Þá verður Elisabeth D. Eldevig Olsen nýr stjórnarformaður Framherja. Færeyski miðiðill VP greindi frá þessu. Framherji var stofnaður í Færeyjum árið 1994 og er í eigu Samherja.
 
Þorsteinn Már hefur einnig hætt störfum fyrir Samherja á Íslandi og virðist svo að fréttaumfjöllun Kveiks og Stundarinnar sé byrjað að hafa áhrif á alþjóðlega starfsemi Samherja. Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Síldarvinnslunnar og Icelandair, tók við forstjórastól í Samherja af Þorsteini Má. Hefur Björgólfur sagt í fjölmiðlum að meintar mútugreiðslur Samherja til stjórnmálamanna í Namibíu verði skoðaðar af norskri lögmannstofu. Yfirvöld í Namibíu hafa nú fryst eigur tveggja manna sem tengdust meintum mútugreiðslum Samherja í Namibíu og segja fjölmiðlar þar í landi að þeir menn hafi flúið landið til Suður-Afríku.