Þorsteinn leiðir ekki viðreisn

Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segist í samtali við hringbraut.is að hann muni hvorki leiða stjórnmálaaflið Viðreisn né bjóða sig fram til þingmennsku fyrir það fyrir næstu alþingiskosningar sem að öllu óbreyttu fara fram að tveimur árum liðnum. Af orðum hans má þó ráða að hann geti vel hugsað sér að gefa því ráð af hliðarlínunni, en hann sé hættur í pólitískri framlínu.


Viðreisn sem Benedikt Jóhannesson hjá Vísbendingu hefur leitt á undirbúningstímanum minnir æ meira á tilveru sína eftir því sem líður á yfirstandandi kjörtímabil. Ljóst er að margir flokkshollir sjálfstæðismenn til margra ára eru að hugsa sér til hreyfings yfir til hennar eftir að forysta Sjálfstæðisflokksins afréð að ganga á bak orða sinna um aðkomu þjóðarinnar að framhaldi viðræðna við Evrópusambandið.


Fjöldi kunnra sjálfstæðismanna hefur kallað þessa breytni forystumannanna "hrein svik" eins og raunar Þorsteinn Pálsson kallaði hana nýverið í þættinum Þjóðbraut í umsjá Páls Magnússonar hér á Hringbraut. Undir þetta hafa tekið Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í sama þætti, svo og Jórunn Frímannsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi flokksins í þættinum Heimsljósi hér á sömu sjónvarpsstöð. 


Það vekur og athygli að það er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra sem stjórnar opnum fundi Viðreisnar um kosti og galla aðildar að ESB á Hótel Hilton Nordica klukkan 17:00 í dag, en annar fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálmur Egilsson, er þar á meðal frummælenda,