Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, var gestur í Þjóðbraut á Hringbraut í morgun.
Auk þess að tala um peningastefnuna og þörfina
á að komast frá krónunni var einnig talað um forsetaembættið og einstaka frambjóðendur.
Þorsteinn vill að embætti forseta Íslands og forseta Alþingis verði sameinuð og þjóðin kjósi þann forseta. Þar með yrði forseti Alþingis ekki eins háður Alþingi og hann er nú. Af þessu yrði miklar og góðar breytingar að mati Þorsteins.
Varðandi frambjóðendur til forseta sagðist Þorsgteinn vera þeirrar skoðunar að þörf sé að önnur kynslóð komist að. Í samtalinu kom skýrt fram að Þorsteinn mun ekki kjósa Davíð Oddsson, arftaka Þorsteins á formannsstóli í Sjálfstæðisflokknum.
Viðtalið verður birt á heimasíðu okkar; hringbraut.is á morgun.