Þorsteinn j. ósáttur: „þetta er klár hörmung“

„Þá er erfiðara að fá tíma hjá heimilislækni á Íslandi en að panta fund eða plokk með Guðna forseta, alveg galið að það er aldrei rætt um gæði heilbrigðisþjónustunnar, sem er upp á 0,5 á richter, mælist eiginlega ekki.“

Þetta segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður í pistli á Facebook. Þar gagnrýnir hann íslenska heilbrigðiskerfið og segir að sjúkleg meðvirkni eigi sér stað þegar kemur að heilbrigðiskerfinu og afsakað með því að álag á starfsfólki sé gríðarlegt og mikið að gera.  

„Það gleymist alveg að spyrja sjúklinga og almenna borgara hvernig þeim líki þjónustan. Því er fljótsvarað þegar kemur að heilsugæslunni: Þetta er klár hörmung því miður;

„Já góðan dag, mig vantar tíma hjá heimilislækninum, er með hálsbólgu sjáðu....nei það er ekki laus tími hjá honum fyrr en í næstu viku eða eftir jól, þú getur komið á vaktina sem byrjar klukkan fjögur. Og er þá löng bið? Það er ómögulegt að segja, getur komið klukkan þrjú og þá ertu framarlega í röðinni...“

Þá segir Þorsteinn: „Er ekki til lítils að byggja nýja stalíníska Landsspítalabyggingu ef ekki er hægt að hækka laun starfsfólksins sem hefur ekki undan eða jafnvel fjölga starfsmönnum? Eða bara að leyfa einkaaðilum að opna heilbrigðissjoppur eins og hverja aðra heildsölu eða verslun með vörur og þjónustu og laga þetta bara?“ spyr Þorsteinn J. og bætir við að lokum:

„Annars eru allir bara að bíða eftir sumaruppbótinni hér á besta stað í bænum; flugmiði aðra leið í sólina og sýklalyf í gjafaumbúðum, svaladrykkir og hóstamixtúrur, blöðrur fyrir börnin einsog venjulega.“