Þorsteinn Víglundsson varaformaður Viðreisnar var í Færeyjum í vikunni. Þar sótti hann Ólafsvöku ásamt eiginkonu sinni.
Þau hjónin tóku einnig þátt í gleðigöngu Færeyinga, sem haldin var í sjöunda skipti, eftir að færeyska gangan var endurvakin árið 2012, þegar Jón Gnarr, þáverandi borgarstjóri tók þátt í göngunni ásamt Hinseginkórnum.