Þorsteinn Pálsson fyrrverandi sjávarútvegsráðherra segir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem krafist er vegna makrílfrumvarpsins geta snúist upp í andhverfu sína. Nei við makrílfrumvarpi þýði í reynd já við gildandi kerfi sem meirihlutinn sé þó líklega andvígur.
Hann bendir á í nýjum pistli sínum á hringbraut.is að útfærsla þjóðaratkvæðagreiðslna geti verið snúin. Hann tekur dæmi: " Margir héldu að þeir hefðu hafnað Icesave í þjóðaratkvæði. Nei þar merkti hins vegar já við því að flytja Icesave yfir í skuldabréf Landsbankans með ábyrgð skattgreiðenda."
Sama geti í rauninni gerst í þjóðaratkvæðagreiðslu um makrílinn sem ríflega 30 þúsund Íslendingar hafa krafist. "Með öðrum orðum er staðan sú að þeir sem segja nei í hugsanlegu þjóðaratkvæði eru um leið að ákveða að veiðiheimildum í makríl skuli úthlutað á grundvelli veiðireynslu til ótiltekins tíma. Ekki er þó víst að það sé raunverulegur vilji allra sem kalla eftir þjóðaratkvæði."
Sjá má pistilinn í heild sinni.