\"Framsókn hefur tapað nærri tveimur þriðju hlutum kjörfylgisins. Eigi að síður bendir margt til þess að málefnastaðan muni líta þannig út eftir kosningar að hún verði í lykilstöðu til að mynda fjögurra flokka stjórn um krónuna og ríkisbankakerfið.\"
Þetta er mat Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi forsætisráðherra en pistill hans í dag á hringbraut.is er greining á ríkisstjórnarmöguleikum að afloknum næstu kosningum: \"Það er tvennt sem færir Framsókn þessa stöðu þrátt fyrir fylgishrun,\" skrifar hann áfram: \"Annars vegar er það skoðanaágreiningurinn milli unga fólksins og flokksforystunnar í Sjálfstæðisflokknum um myntina. Hins vegar er það reikul rás Samfylkingarinnar þegar kemur að því að svara spurningunni um það hvort leita eigi fyrirmynda í gömlu sovéti eða á Norðurlöndum um eignarhald á fjármálastofnunum.\"
Svo getur vel verið, segir Þorsteinn að næsta ríkisstjórn verði mynduð alveg án tillits til þessara stóru mála: \"Þá fer allt í einhvern graut sem enginn sér fyrir.\"
Hann segir gjaldmiðil og bankakerfi vera stóru málin sem þarf að útkljá. Í báðum þeim málum tali flokkarnir út og suður - og sumir flokkar, eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sé klofinn í myntinni. Hann vilji heldur ekki það sovéska bankakerfi sem Framsókn klappar upp og Samfylking virðist höll undir, en þori sennilega ekki að selja bankana í hvelli til að styggja ekki Framsókn upp á mögulegt framhald á samvinnu
\"Af þessari greiningu má draga þá ályktun að um þessi tvö stærstu pólitísku viðfangsefni næstu ára verður engan veginn auðvelt að mynda starfhæfa meirihlutastjórn,\" skrifar Þorsteinn og bendir á annað: \"Framsókn og VG eiga samleið að því er báðar spurningarnar varðar. Leggi þingflokkur sjálfstæðismanna allt kapp á að halda krónunni gæti hann bæst í hópinn með því að fórna hugmyndum sínum um bankakerfi að vestrænni og norrænni fyrirmynd. Eins og skoðanakannanir standa gætu þessir þrír flokkar þó ekki myndað meirihlutastjórn nema Samfylkingin legði þeim lið. En til þess þyrfti hún að fórna stefnu sinni um alþjóðlega gjaldgenga mynt.\"
Staðan er sumsé flókin: \"Annar ríkisstjórnarkostur fælist í því að opna fyrir möguleika á alþjóðlega gjaldgengri mynt með því að láta þjóðina strax að loknum þingkosningum taka ákvörðun um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Píratar, Samfylkingin og Björt framtíð gætu staðið að slíkri málamiðlun. Það er þó alveg á mörkunum að þessir þrír flokkar nái meirihluta eins og pólitíska loftvogin stendur um þessar mundir.\"
Niðurstaða Þorsteins er því sú að Framsókn haldi í helstu þræðina.