Þorsteinn fór með bílinn í skoðun: „Sú breyting hefur orðið bifreiðaeigendum dýrkeypt“

Stjörnufræðingurinn Þorsteinn Sæmundsson furðar sig á því hversu mikið gjald fyrir bifreiðaskoðun hefur hækkað undanfarin ár. Í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir hann að nýverið hafi hann farið með sinn bíl og bíl konunnar sinnar í skoðun, fékk hann reikning upp á 13.890 krónur.

Í seinna skiptið tók hann tímann, sem reyndist 9 mínútur. „Það merk­ir að klukku­tíma­gjaldið er hátt í 60 þúsund krón­ur. Nú er það mín reynsla og annarra sem ég hef spurt, að klukku­tíma­gjald á bif­reiðaverk­stæði sé varla meira en 20 þúsund. Gjaldið fyr­ir skoðun er því þris­var sinn­um hærra,“ segir Þorsteinn.

„Árið 1989 var gjaldið kr. 1.900. Árið 1995 var það kr. 2.910. Gjaldið nú er 13.890 eins og fyrr er sagt. Hækk­un­in frá 1989 til 1995 sam­svaraði nokk­urn veg­inn hækk­un fram­færslu­vísi­töl­unn­ar á þess­um árum. Hækk­un­in eft­ir 1995 er hins veg­ar tvö­falt meiri en hækk­un vísi­töl­unn­ar. Þetta vek­ur þá spurn­ingu hvað hafi breyst eft­ir 1995. Því er auðsvarað. Árið 1997 var skoðunin færð frá rík­inu til einkaaðila. Sú breyt­ing hef­ur orðið bif­reiðaeig­end­um dýr­keypt. Hafi menn von­ast til þess að sam­keppni þrýsti verðinu niður hef­ur sú von ekki ræst.“

Grein Þorsteins hefur vakið mikla athygli, meðal þeirra sem tjá sig um málið er Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar sem segir á Facebook:

„Ég veit það ekki. Ég versla við einn skoðunaraðila nálægt mér. Tékkland. Finnst þeir með faglega þjónustu og hlýlegt og þægilegt viðmót. Það er ekki sjálfgefið að þjónusta við bifreiðaeigendur eigi að vera álitin grunnþjónusta sem skattgreiðendur hlaupi undir bagga með ef hún fer að skila halla. Betra svona.“