Það hlýnar heldur á landinu þegar líða tekur á vikuna - og má búast við því að hiuti verður víðast hvar í kringum, frostmark þegar Þorri gengur í garð í aðdraganda næstu helgar.
Talsverður kuldapollur hefur verið yfir landinu síðustu daga, einkanlega í innsveitum norðanlands þar sem frost hefur oftsinnis mælst meira en tíu gráður á síðustu dögum. Hætt er við að frostið í dag geti slegið í 20 gráður inn til landsins.
Það er nokkuð ákveðin suðaustanátt í kortunum og hún færir landsmönnum æ hlýrra loft eftir því sem líður á vikuna - og gæti hiti nálgast sex til sjö gráður á fimmtudag.
Á fyrsta dag Þorra, föstudag kólnar aftur lítillega, en þá verður suðlæg átt og rigning eða slydda víða um land og fremur milt, en vestlægari síðdegis með dálítlum éljum vestantil en heiðríkju til fyrir austan.