Eftir all nokkra kuldatíð á Ísalandi skiptir veðrið um ham þegar Þorri gengur í garð á föstudag. Raunar byrjar litla hitabylgjan á morgun þegar slær í einhverjrar 8 gráður um sunnan- og vestanvert landið.
Talsverður galsi í vindi fylgir þessu veðri og rigningarslæða syðra en um norðanvert landið veður þurrt og milt. Á fyrsta dag Þorra verður svo skaplegt veður í meira lagi; suðaustlæg eða breytileg átt, víða rigning eða slydda, en snjókoma inn til landsins. Hiti verður frá frostmarki til 5 stiga, en hlýrra um tíma um austanvert landið.
Um helgina verða talsverðar umelhyepingar, fyrst með suðvestanátt og talsverðri slyddu um suðvestanvert landið, en á sunnudag gengur hann í stífa suðaustanátt með rigningu, einkum sunnan til og hita á bilinu 2 til 8 stig.