Þorrablót íslendinga í uppnámi: öllu hent - „við erum í áfalli“

Þorrablót Íslendinga á Kanarí er í uppnámi en það á að fara fram á morgun. Á Facebook greina skipuleggjendur frá því að tollgæslan á flugvellinum hafi ekkert litist á hinn íslenska þorramat og gert hann upptækan eins og hann leggur sig. Í færslu á Facebook-síðu Íslendingafélagsins segir:

„Kæru landar

Við lentum í þeim hremmingum í gær, að tolllögreglan á flugvellinum henti öllum þorramatnum okkar!“

Íslendingafélagið stefnir engu að síður á að reyna að að blása til sóknar og halda þorrablótið á veitingastaðnum Maspalomas Lago klukkan 17:00 á morgun. Í færslunni segir enn fremur:

„Við erum auðvitað í áfalli en viljum blása til sóknar og gera gott úr þessu. Það verður því ÞORRAKJÖTSÚPA af bestu gerð, íslenskt gaman, söngur og dans.“

Fjölmargir tjá sig undir færslunni og þar segir Vigdís nokkur Bjarnadóttir:

„Þetta verður allt í lagi, gerum bara gott úr þessu. Það er svo mikill titringur alls staðar út af kóronaveirunni. Við verðum að sýna því skilning.“