Þorpið leggst af án flugvallarins

Þorpið Kulusuk í austur Grænlandi hafi margir heyrt nefnt. Staðurinn er þó sá sem hinir mestu fjallaklifurmenn fara mikið til. Þorpið telur 245 íbúa í dag. Í fyrstu er ljóðrænt að sjá litrík húsin og upplifa ró og þögn. En svo þyngist hjartað og þá sést fátæktin.

Breiður af sleðahundum um allt þorp sem hafa ekkert hlutverk í hlýindum. Þeir eru hlekkjaðir við steina stóran hluta ársins og að mestu sveltir af sérstökum ástæðum innfæddra. En ísinn þynnist og færri hunda þarf til verka um veturna.

Sýninni og upplifuninni um að koma til Kulusuk er erfitt að dreifa með öðrum nema þeir fari þangað sjálfir. Hringbraut mun á næstu dögum sýna myndir frá þessum ótrúlega stað, þar sem fjallatopparnir eru svo magnaðir að venjulegum Íslendingi skortir orð.

Það er flugvöllur í Kulusuk. En fari hann, eins og rætt hefur víst verið um, þá þurrkast þorpið út. 

 Hringbraut fór til Kulusuk og sá og fann fyrir því sem þar er í gangi. Næstu daga mun Hringbraut fjalla um Kulusuk og stöðu þess innan stærstu eyju í heimi. Grænlandi.