„Ég held að enginn hafi spurt um framtíðina meira heldur en þú sjálfur og ég held að þú hafir yfirleitt fengið sama svarið: að það er ómögulegt að segja," sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í svari við spurningu Björns Inga Hrafnssonar hjá Viljanum á upplýsingafundi Almannavarna í dag og uppskar svarið nokkurn hlátur viðstaddra.
Björn hóf fyrirspurn sína svo: „Nú hefur þú auðvitað stúderað faraldsfræði lengi og fjallar stundum svona almennt um þessa þessa veiru. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segja að það sem einkenni hana sé að menn viti eiginlega ekki neitt.“
„Helstu sérfræðingar heims eru alltaf að læra eitthvað nýtt um hana. Menn voru að vonuðust til þess að hún mundi draga úr áhrifum sínum þegar færi að hlýna. Það er svo margt sem er að koma einhvern veginn fram sem er þvert á það sem menn voru alla vega vonast eftir en kannski ekki að spá ertu sammála þessu - er þessi veira algjört ólíkindatól?“ spurði Björn svo og fékk þá það svar frá Þórólfi að líklega hefði enginn spurt jafn mikið um framtíðina og hann.
„En það er alveg rétt að þetta er ný veira og það er margt sem menn hafa ekki vitað. En ég tek ekki undir það að menn viti ekki neitt um hana. Menn vita mjög mikið um hana en menn vita ekki nákvæmlega hvernig verður í framtíðinni. Það er það sem er erfitt að spá um," svaraði Þórólfur svo.