Þórólfur: Rétt mat að bólusetja Daða Frey og Gagnamagnið

„Ástæðan fyrir því að Eurovisionfararnir voru bólusettir eftir mikla umræðu, þeir eru sendir þarna út af ríkinu til Hollands, sem er hááhættusvæði. Þarna eru að koma saman hópar frá allri Evrópu og eru þétt saman í langan tíma,“ sagði Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir á upplýsingafundi almannavarna í morgun. Þar varði hann ákvörðun sína að bólusetja Daða Frey og Gagnamagnið. Nokkrir hafa gagnrýnt það, þar á meðal Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins.

„Það var mat okkar að þetta væri áhætta fyrir þennan hóp enda hefur það komið í ljós. Tveir úr þessum hópi hafa smitast. Þetta áhættumat okkar var rétt. Það hefði verið betra að bólusetja þá fyrr, vonandi er bólusetningin farin að virka til að komast vel yfir þessa sýkingu.“

Einnig hefur verið gagnrýnt að atvinnulífið fengi ekki forgang á borð við Eurovisonfaranna.

„Við höfum verið mjög ströng á að veita ekki þessar undanþágur vegna þess að ef við förum að gera það þá er það gríðarlegur fjöldi sem krefst þess að fá bólusetningu. Það er alls konar atvinnustarfsemi og fólk að fara erlendis, það sést ekki fyrir endann þá því ef við byrjum.

Lyfjafyrirtækið Pfizer mun flytja inn bóluefni sérstaklega fyrir Ólympíufara Íslands, verða þau bóluefni fyrir utan okkar byrgðir.