Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir er ekki par sáttur við þá landsmenn sem taka sóttvarnaraðgerðum vegna Covid-19 af meiri léttúð en áður. Hann hefur skilað nýju minnisblaði til ráðherra, þar mælir hann ekki með hertum aðgerðum.
„Mér sýnist það bara almennt séð að fólk sé farið að taka flest af því sem er verið að gera minna alvarlega. Mér sýnist á viðburðarhöldurum mörgum að það sé ekki farið eftir þeim reglum sem eru í gildi hvað varðar fjöldamörk, umgengni og jafnvel grímunotkun og mér þykir það miður,“ sagði Þórólfur við RÚV.
„Mér sýnist almennt sér að fólk sé farið að slaka allverulega á og kannski meira en ég tel ákjósanlegt.“