Þórólfur herðir ekki aðgerðir „að svo stöddu“: „Fjöldi ferðamanna er alltof mikill“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst ekki skila Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra tillögum að hertum ráðstöfunum að svo stöddu. Þetta kom fram á upplýsingafundi Almannavarna, þeim fyrsta í nærri 50 daga. 26. júní var öllum sóttvarnaraðgerðum aflétt og hætt var að skima á landamærunum síðustu mánaðarmót.

Síðustu daga hefur mikil aukning smita verið rekin til smita á landamærum og til skemmtistaða. 17 smit greindust í gær, þar af 10 smit innanlands.

Þórólfur sagði að í ljósi smita á landamærum gæti staðan breyst á skömmum tíma.

„Þá gæti sú staða komið upp fljótlega ef ástandið fer versnandi,“

Þórólfur vill finna leiðir til að sporna við dreifingu COVID-19 um samfélagið án hertra aðgerða og leggur til að krefja alla sem hingað koma um neikvætt PCR vottorð. Höfum við ekki bolmagn til að taka sýni frá öllum sem hingað koma.

„Fjöldi ferðamanna er alltof mikill,“ sagði Þórólfur.