Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er að fara í sína fyrstu utanlandsferð frá því að heimsfaraldurinn hófst. Blaðamaður Fréttablaðsins spurði hann út í fyrirhugað ferðalag, en Þórólfur svaraði: „Ég ætla nú ekkert að gefa neitt upp um það. Ég er bara að fara í frí,“
Aðspurður út í það hvort hann væri ekki feginn svaraði hann: „Jú jú, auðvitað er ég það. Ég hélt þetta væri ekkert fréttnæmt, þótt einhver fari í frí. Mér finnst það ekkert merkilegra en að einhver annar fari bara í frí. En það er alltaf gaman að fara í frí, jú, jú allt í góðu.“