Þorkell ræðir flokkinn og hrunið

Einn virtasti athafnamaður landsins, Þorkell Sigurlaugsson er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í kvöld en þar ræðir hann ævi sína og störf sem í báðum tilvikum einkennast af miklum áskorunum.


Þorkell var aðeins sex ára gamall þegar fætur hans gáfu sig og hann var sendur utan til Danmerkur í erfiða aðgerð hjá einum færasta lækni Dana sem fjarlægði æxli við mænuna á piltinum unga. Þorkell jafnaði sig furðufljótt og kom heim, talandi á danska tungu með Andrésblöðin undir hendinni, en hann vissi ekki þá að meinið hafði skemmt meira en líkamninn gat þolað á seinni árum. Hann var farinn að notast við staf á þrítugsaldri en smám saman þraut honum kraftur í fótunum á nýjaleik sem endaði með því að hann varð bundinn hjólastól.


Þorkell ræðir ekki einasta þennan lífsins mótvind af einlægni heldur og allar þær áskoranir sem hann hefur tekist á við í lífinu; mottó hans hefur verið að allir menn þurfi að ná árangri í lífinu - og þar eð hann vissi að hann myndi aldrei ná langt í íþróttum eða listum afréð hann að reyna fyrir sér í atvinnulífinu. Og það reyndist gæfuspor; hann tók þátt í eftirminnilegri endurreisn Eimskipafélagsins á áttunda og níunda áratugnum ásamt Herði Sigurgestssyni forstjóra og gerði gamla óskabarnið að því stórveldi sem það varð undir lok síðustu aldar.


Í byrjun nýrrar aldar sá Þorkell hins vegar hvað verða vildi; honum hugnðist ekki aðferðafræðin við einkavæðingu bankanna og allt það offors í viðskiptalífinu sem að lokum keyrði það í þrot. Hann yfirgaf því viðskiptalífið í tíma og tók við uppbyggingu Háskólans í Reykjavík árið 2004 og sér ekki eftir umskiptunum.


Loks ræðir Þorkell opinskátt um hug sinn til Sjálfstæðisflokksins sem hann "styður ennþá" en hann telur gamla flokk sinn hafa sveigt mjög af leið og ekki fylgja þjóð sinni lengur eftir, enda hafi hann hallað sér um of upp á Framsóknarflokknum og tapað gömlum gildum sínum fyrir vikið.


Mannamál eru frumsýnd klukkan 20.00 í kvöld.