Leikarinn Þórir Sæmundsson hafnar því að hafa verið á bak við hinn umdeilda Twitter-aðgang Evu Lunu. Umræddur aðgangur hefur verið áberandi í umræðunni síðustu daga eftir að ung kona hélt því fram að líklega væri Þórir sá sem stjórnaði honum. Í kjölfar þess var aðganginum eytt.
Nokkuð ljóst er að Eva Luna var gerviaðgangur, nafnið er fengið frá skáldsagnapersónu, og gaf umgjörð hans í skyn að ekki væri um raunverulega manneskju að ræða. Það fólk sem telur að Þórir hafi verið á bak við reikninginn hefur bent á að hann lék í leikritinu Eva Luna sem sett var upp í Borgarleikhúsinu árið 1993.
Eva Luna var nokkuð dugleg að koma með svokölluð „heit teik“ eða varpa fram umdeildum skoðunum á Twitter. Til að mynda gagnrýndi aðgangurinn Píeta-samtökin harðlega.
Þórir hafnar því alfarið að vera á bak við Evu Lunu í færslu sem birtist á Facebook í gærkvöldi. Mannlíf fjallaði um málið í vikunni en svo virðist sem blaðamaður miðilsins hafi hringt í Þóri sem segist hafa komið af fjöllum. Í færslu hans segir:
„Heyrði það að það væri brjálað fólk á twitter að vera brjálað af því það heldur að ég sé einhver er nafnlaus account þar. Eitthvað Eva Lúna dæmi.
Ég vissi ekki hvað maðurinn frá Mannlífi sem hringdi í mig gær var að tala um, því það er orðið nokkuð síðan ég var á þeim eitraða vettvangi sem twitter er, en vissulega lék ég í Evu Lúnu í Borgarleikhúsinu um 1994 að ég held.
Svo á ég að hata Píetasamtökin undir þessu nafni eða eitthvað svoleiðis.
Ég hef ekki séð eða lesið það sem stendur á þessum reikningi og ég nenni ekki að kynna mér það, en ég skal fullyrða hér að það er ekki ég sem stend á bakvið þetta Evu Lúnu dæmi.“
Þórir hefur áður verið á bak við umdeildan leyniaðgang, en það vakti mikla atygli árið 2019 þegar í ljós kom að hann stjórnaði @BoringGylfiSig. Þórir gekkst við því að vera á bak við þann aðgang, en líkt og Eva Luna var Boring Gylfi Sig duglegur að varpa fram óvinsælum skoðunum.
Líkt og flestir vita tók Kveikur umdeilt viðtal við Þóri síðasta haust, þar sem hann fjallaði um erfiðleika sína við að útvega sér atvinnu eftir að hann sendi ólögráða stúlkum kynferðislegar myndir.