Þórhildur sunna tuktar til brynjar: sendiboði hræsninnar innan sjálfstæðisflokksins tekur slaginn fyrir undirmálsmanninn eyþór

„Hér tekur sérlegur sendiboði hræsninnar innan Sjálfstæðisflokksins slaginn fyrir undirmálsmanninn Eyþór Arnalds og þykist ætla að senda mér reikninginn fyrir afskriftum Samherja á kúlulánabraski oddvitans síns í Reykjavík. Fyrir utan hvað þetta er hlægileg og augljós tilraun til þess að afvegaleiða spillingarfnykinn sem enn einu sinni umlykur Sjálfstæðisflokkinn þá lýsir þessi pistill minnimáttarkenndinni sem hlýtur að hrjá Brynjar Níelsson á hverjum degi.“

Þannig hefst harðorður pistill eftir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata, sem hún birtir á Facebook-síðu sinni. Þar svarar hún skrifum Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins frá því fyrr í dag. Þar sakaði Brynjar þingflokk Pírata um að vera hallir undir popúlíska aðferðarfræði um leið og hann undraðist að Evrópuþingið hefði ekki fordæmt framgöngu hennar vegna máls Ásmundar Friðrikssonar og sæju ekkert athugavert við það að hún gegndi formennsku í einni af mikilvægustu nefndum Evrópuráðsins.

Rekja má pistil Brynjars til viðtals sem Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata fór í á Rás 2 í morgun. Þar mætti hún Eyþóri Arnalds oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þar ræddu þau lánveitingar dótturfélags Samherja til félags í eigu Eyþórs vegna kaupa í útgáfufélagi Morgunblaðsins. Það hefur nú verið afskrifað í bókum Samherja. Í Stundinni var sagt að liti út fyrir að um sýndarviðskipti væri að ræða. Mátti skilja það á Dóru að Eyþór hefði komið óheiðarlega fram og sagt ósatt um viðskiptin og liti út fyrir að Eyþór væri að sinna útfararstörfum fyrir útgerðarfélögin.

Eyþór brást ókvæða við og greindi RÚV frá því að hann ætlaði að fara fram á að forsætisnefnd Reykjavíkurborgar tækju til skoðunar ummæli Dóru Bjartar og sagði þau brjóta gegn siðareglum kjörinna fulltrúa borgarinnar. Þórhildur Sunna tjáði sig um fréttina og vísaði þar til þess þegar hún setti út á aksturgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar. Þórhildur Sunna sagði:

„Déjà vu! Ég hef rökstuddan grun um að litlir karlar í Sjálfstæðisflokknum eigi bágt með þegar konur í Pírötum benda á spillinguna í bakgarðinum hjá þeim.“

Þá steig Brynjar fram á ritvöllinn til stuðnings Eyþóri og sagði að um leið og fylgi Pírata færi niður væri brugðið á það ráð að fara í herferð með ásökunum um óheiðarleika, spillingu og sinnuleysi annarra. Bætti Brynjar við að þar færi Þórhildur Sunna fremst í flokki.

Þórhildur Sunna birti síðan pistil í dag þar sem hún svarar Brynjari. Þar sagði Þórhildur Sunna:

„Brynjar fer hér mikinn um sjálfskipaða sérfræðinga í siðferðislegum málefnum og mannréttindum sem eiga að reka grímulausa pólitík í Evrópuráðsþinginu. Fyrir Brynjari er það auðvitað óhugsandi að ég hafi nokkuð gert til þess að verðskulda formennsku í einni af mikilvægustu nefndum Evrópuráðsþingsins. Það hlýtur auðvitað að vera erfitt fyrir mann eins og hann að fá ekki einu sinni eina formennsku í sinn hlut frá sínum flokki eftir alla æluna sem hann er búinn að kyngja.“

Þá sagði Þórhildur Sunna að eina útrásin sem Brynjar fái sé að sitja í forsætisnefnd þar sem hann útdeili sérlega sérstakri tegund af siðferðiskennd og mannréttindavernd.

„Við skulum ekki gleyma því að Brynjar hljóp í felur þegar forsætisnefnd fékk Klaustursmálið til meðferðar og sagði sig frá því á þeim grunni að hann hafi tjáð sig opinberlega um málið. Þetta gerði hann á grunni lagatúlkunar sem stenst enga skoðun, lögmaðurinn sjálfur – berandi fyrir sig að vanhæfisreglur stjórnsýsluréttar næðu yfir málsmeðferð forsætisnefndar Alþingis.“

Bætti Sunna við að Brynjar hefði ekki átt í nokkrum vandræðum að setja sig í siðapostulasæti gagnvart henni, þegar hún hefði bent á að rökstuddur grunur væri um að Ásmundur Friðriksson hefði svikið út fé. En aksturgreiðslur til Ásmundar námu mörgum milljónum og rukkaði hann m.a. fyrir að aka kvikmyndatökuliði, sem hann síðar endurgreiddi til ríkisins. Í kjölfar þess að Píratar fóru fram á aukið gagnsæi við aksturgreiðslur þingsins, þá hefur kostnaður vegna þeirra dregist umtalsvert saman.

Þórhildur Sunna segir að lokum í pistli sínum: „Kannski er Brynjar orðinn svo kalkaður að hann man ekki þegar hann sagði mér að skammast mín fyrir þessi ummæli daginn eftir að ég lét þau falla. Líklegra finnst mér þó að siðferði, sanngirni og jafnræði skipti Brynjar Nielsson engu máli, nema þá helst ef nota má þessi hugtök til þess að reyna að þagga konur sem tjá sig um fýluna í flokknum hans.“