Þórhildur Sunna fjarlægði ummæli eftir leiðréttingu frá Konráð: „Ég fór ekki vísvitandi með rangt mál“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, fjarlægði ummæli sín á Twitter eftir að þau voru leiðrétt af Konráð Guðjónssyni, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Ekki er lengur hægt að sjá hvað Þórhildur Sunna sagði en svar Konráðs var afgerandi:

Stefán nokkur sagði: „K.O.,“ eða „Rothögg“ í athugasemd.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, deildi þessu og sagði: „Það er þetta með staðreyndir og kosningabaráttu.“

Þórhildur Sunna baðst afsökunar: „Í dag fór ég rangt með staðreyndir, var bent á það, leiðrétti mistökin og baðst afsökunar. Ég leyfði mistökunum að standa með leiðréttingunni upp á samhengi.“ Hún útskýrir að þau hafi svo verið fjarlægð eftir að Áslaug Arna setti út á það og annar að það sé til að blekkja fólk. „Ég hef því eytt þessum tístum.“

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur reyndi svo að stappa stálinu í Þórhildi: „Ekkert að græða á því, íhaldsguttarnir eiga screenshotin og munu draga þau fram ad nauseum í stað þess að eiga málefnalega samræðu í góðri trú. Haltu áfram að vera frábær með mistökunum og öllu.“