Þór­hild­ur Gyða and­leg­a og lík­am­leg­a bug­uð: „Mikl­ar lík­ur að ég hefð­i end­að í kuln­un“

Að­gerða­sinninn og með­limur Öfga, Þór­hildur Gyða Arnars­dóttir, segist í Twitter-færslu vera í veikinda­leyfi frá vinnu „vegna and­legrar og líkam­legrar bugunar vegna stöðugs á­lags sem ég hef verið undir síðast­liðnar vikur.“

Þór­hildur Gyða hefur staðið í ströngu undan­farna mánuði en í lok sumars steig hún fram og sagði frá meintu of­beldi sem hún mátti þola af hendi lands­liðs­mannsins Kol­beins Sig­þórs­sonar. Þá kærði Þór­hildur ný­lega hæsta­réttar­lög­manninn Sigurð G. Guð­jóns­son fyrir að hafa birt myndir úr lög­reglu­skýrslu hennar.

Það er greini­legt að undan­farnir mánuðir hafa tekið á Þór­hildi og viður­kennir hún á Twitter að hún hefði hæg­lega getað endað í kulnun ef hún hefði haldið á­fram.

„Ef ég hefði harkað þetta af mér eru miklar líkur að ég hefði endað í kulnun fyrir 26 ára aldur. Í staðinn verð ég orku­meiri með hverjum deginum.“

Í tísti sínu vitnar Þór­hildur í gríðarvin­sælt tíst sem á­hrifa­valdurinn og hlað­varps­stjórnandinn Edda Falak birti á Twitter í gær þar sem hún hvatti fólk til að nýta veikinda­daga sína.

Tíst Eddu hefur vakið gífur­leg við­brögð og ekki öll af já­kvæðum nótum en margir vilja meina að með þessu sé hún ein­fald­lega að ýta undir aumingja­væðingu.

Fjöl­margir virðast þó vera sam­mála Eddu og verður því ef­laust spennandi að sjá hversu mörg af­föll verða á vinnu­stöðum landsins komandi mánu­dag, eins og Edda ýjar sjálf að í öðru tísti.