Rithöfundurinn og samfélagsrýnirinn Þorgrímur Þráinsson hefur birt áhrifaríka hugvekju á Facebook síðu sinni þar sem hann spyr einfaldlega: „RÉTT FORGANGSRÖÐUN?“ í hástöfum.
Vísar hann í fréttir vikunnar um fjölgun Covid-smita og viðbrögðin við þeim.
Við gefum Þorgrími orðið:
„* 7 smit greindust innanlands. Panik-ástand! Hertar aðgerðir í aðsigi.
* 20 greindust með lesblindu. ,,Snemmtæk“ íhlutun er 18 mánaða bið eftir astoð.
* 30 greindust með kvíða. ,,Snemmtæk“ íhlutun í skoðun en ekki í öllum landshlutum.
* 1600 drengir gátu ekki lesið sér til gagns í 10. bekk vorið 2021. Verið að skoða málið. Brotin sjálfsmynd með tilheyrandi skaða og kostnaði, fyrir alla.
* Notkun ADHD lyfja hjá 10-14 ára strákum á Íslandi hefur hækkað úr 8% árið 2010 í 15% árið 2019. Evrópumet!
* Tuttugu sinnum fleiri grunnskólabörn fá ávísun á þunglyndislyf á Íslandi en á hinum Norðurlöndum. Margfalt Norðurlandamet!
* 31% drengja falla í framhaldsskóla. Þetta hlýtur að reddast!
* Á Íslandi eru fleiri karlar á aldrinum 25-34 ára án framhaldsskólamenntunar en í flestum öðrum vestrænum ríkjum. Hverjum kemur það við?
* 6,7 milljónir eru á vergangi í Sýrlandi vegna stríðsátaka. 13,4 milljónir þurfa á neyðarhjálp að halda. En það er svo langt í burtu!
* 7 smit greindust innanlands. Hertar aðgerðir í aðsigi!“