Þorgrímur býður sig fram til forseta

Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu ætlar að bjóða sig fram í forsetakosningunum næsta sumar - óháð því hvort Ólafur Ragnar Grímsson gefi kost á sér í sjötta sinn.
 
Þorgrímur segir tíma kominn á breytingar - í framboði hans felist þó ekki nein gagnrýni á Ólaf Ragnar, hann beri mikla virðingu fyrir forsetanum, en það var

Vísir sem greindi fyrst frá málinu. Þorgrímur hefur ekki rætt framboðið við neinn nema eiginkonu sína en segir þetta lengi hafa blundað í sér,

Þorgrímur er fyrstur til að lýsa því yfir opinberlega að hann ætli að bjóða sig fram. Nöfn Stefáns Jóns Hafsteins, Ómars Valdimarssonar, Sturlu Jónssonar og Bergþórs Pálssonar hafa verið nefnd í tengslum við mögulegt forsetaframboð sem og nafn Ólafs Jóhanns Ólafssonar.

Ástæðan fyrir því að fyrirhugað forsetaframboð kemur upp á yfirborðið er fölsk Facebook-síða sem sett var upp í nafni Þorgríms í morgun. Forsetaframbjóðandinn tilvonandi sagðist í samtali við RÚV í dag ekki geta hugsað sér að byrja þessa vegferð sína á því að ljúga að fjölmiðlum - hann hafi því neyðst til að segja satt og rétt frá. „Þetta var ótímabært, ég ætlaði ekkert að tilkynna þetta fyrr en í janúar eða febrúar.“