Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar er ekki sátt með hvernig sala á hluta ríkisins í Íslandsbanka fór. Hún segir ríkisstjórnina hafa lýst yfir vantrausti á sjálfa sig. Þetta segir hún íaðsendri skoðanagrein á Vísi.
Hún vill meina að eina stefnumál Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórnarsamstarfinu hafi verið tekið af lífi, „Því er slaufað,“ segir Þorgerður, en hún segir þetta hafa verið stærsta stefnumál ríkisstjórnarinnar.
Eftir standi stefnumál sem koma beint frá Vinstri Grænum og öllum flokkunum sameiginlega, því hafi átt sér stað stefnubreyting hjá ríkisstjórninni.
Þorgerður segir ríkisstjórnina hafa lýst yfir vantrausti á sjálfa sig, það sé ný staða í íslenskri pólitík sem er ekki góð.
Hún vill að ríkisstjórnin taki ábyrgð á málinu, enda ber ríkisstjórnin ábyrgð á öllum verkum sínum, hvort sem ríkisstjórninni líki það betur eða verr.
Þorgerður segir það líta svoleiðis út að samkeppni sé algjört bannorð í hugum ríkisstjórnarinnar, hvort það sé samkeppni erlendra fjárfesta í fjármálakerfinu eða í öðrum samkeppnismálum sem ríkisstjórnin hefur tekið afstöðu gegn.