Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörin formaður Viðreisnar á landsþingi flokksins sem fram fer um helgina. Hlaut hún 95.3% greiddra atkvæða. Þorsteinn Víglundsson var kjörinn varaformaður með 98.5% atkvæða.
Þorgerður var bljúg í þakkarávarpi sínum á þinginu: \"Takk fyrir þennan eindregna stuðning. Hann er mér ákveðið veganesti sem brýnir mig áfram í rugga bátnum með ykkur. Hlakka til að vinna með ykkur, fyrir okkur öll til að gera samfélagið okkar betra. Við getum gert betur, við höfum leiðirnar og lausnirnar. Framundan eru verkefni sem bíða okkar. Við förum héðan vel nestuð. Ný forysta með sterkt umboð mun skila góðum árangri. Áfram Viðreisn,“ sagði Þorgerður í þakkaræðu sinni eftir kjörið.
Auk formanns og varaformanns var kosin ný stjórn Viðreisnar. Aðalmenn: Benedikt Jóhannesson, Hildur Bettý Kristjánsdóttir, Karl Pétur Jónsson, Sara Dögg Svanhildardóttir, Sveinbjörn Finnsson