Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, mun gefa kost á sér á lista Viðreisnar fyrir komandi alþingiskosningar. Þorgerður mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi, eða Kraganum svonefnda, DV fullyrði þetta í dag og vísar í heimildir sínar. Þorgerður hefur enn ekki stigið fram sjálf og lýst yfir framboði en við því er búist fyrir helgi að hún segi sig úr Sjálfstæðisflokknum og fari fram fyrir Viðreisn.
Þorgerður starfar nún sem forstöðumaður nýs mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins.