Þorgerður katrín um bannon-væðingu: „ég nenni ekki að tipla á tánum í kringum þetta“

„Ég hef ákveðnar áhyggjur af því að ákveðin aðferðafræði sé að ná tökum á okkar samfélagi. Ég hef kallað þetta Bannon-væðingu. Við erum að upplifa það að íslenskir Steven Bannonar eru að spretta upp hér þar sem er beinlínis og markvisst verið að afvegaleiða umræðuna. Það er verið að halda fram rangfærslum nógu lengi til að sá efasemdarfræjum hjá fólki á grunni ótta.“

Þetta er meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði í viðtali í Kastljósi á RÚV í gærkvöld. Hún hefur af því áhyggjur að úrtöluraddir og þjóðernispopúlismi fari vaxandi og bendir á að ungt fólk hafi áhyggjur af framtíð Íslands þegar kemur að þátttöku í alþjóðasamstarfi.

 „Við höfum séð þessa þróun annars staðar og það er kannski þess vegna sem unga fólkið er að minna okkur á að standa þessa vakt. Þau horfa á EES-samninginn sem er hluti af þeirra samfélagi í dag og þeirra hversdagslífi. Þau eru með greiðan aðgang að menntun annars staðar, geta gengið í vinnu annars staðar í Evrópu og búið annars staðar. Þau horfa á heiminn öðruvísi en við sem eldri erum,“ sagði hún og vísaði til auglýsingar sem birtist í Fréttablaðinu í gær.

Í auglýsingunni hvöttu 272 ungir einstaklingar, þvert á flokka og óflokksbundnir, stjórnvöld til þess að tefla ekki framtíð sinni í hættu og nefndu EES-samninginn sérstaklega í því samhengi. Þeim þykir umræða um samninginn hafa verið knúin áfram af rangfærslum og ósannindum og Þorgerður Katrín tekur undir það.

Henni þykir líklegt að umræða um þessi mál verði fyrirferðarmikil í næstu kosningum. „Ég nenni ekki að tipla á tánum í kringum þetta. Ég spái því að í næstu kosningum fari flokkar eins og Miðflokkurinn og Flokkur fólksins í samkeppni um það hver er með digurbarkalegustu yfirlýsingarnar í garð EES-samningsins og hvort að hagsmunum okkar sé ekki betur borgið utan EES.“