Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur látið af störfum fyrir Samtök atvinnulífsins, eftir að hún lýsti yfir framboði til Alþingis í gær fyrir hönd Viðreisnar. Þorgerður kom til starfa fyrir Samtök atvinnulífsins vorið 2013 en hún hefur gengt starfi forstöðumanns mennta- og nýsköpunarsviðs samtakanna. Í tilkynningu samtakanna er Þorgerði þakkað fyrir öflugt starf í þágu menntunar og nýsköpunar innan atvinnulífsins og henni óskað velfarnaðar.
Þorgerður katrín hætt hjá sa
Fleiri fréttir
Nýjast