Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hæddist að Mjólkursamsölunni og Ara Edwald, forstjóra hennar fyrir aðkomu fyrirtækisins að viðskiptasendinefnd Íslands sem var í för með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra í Rússlandi nú á dögunum.
DV greindi fyrst frá. Með Guðlaugi í för var umrædd nefnd, skipuð fulltrúm nítján íslenskra fyrirtækja og þá var þar einnig Rússnesk-íslenska viðskiptaráðið og er Ari Edwald formaður hennar. Þorgerður lagði á það áherslu í umræðum um störf þingsins að skilaboð frá Íslandi væru skýr.
„Þess vegna skiptir til að mynda máli að í ferð utanríkisráðherra til Rússlands, í opinberri heimsókn, hvorki meira né minna, séu skilaboðin skýr því að verið er að tala fyrir því að reyna að opna á ný markaði fyrir íslenskar vörur, ekki síst matvæli. Á sama tíma verða skilaboðin líka að vera skýr, að við séum ekki að slíta okkur úr samfloti frá vinaþjóðum okkar á Norðurlöndum, ESB-þjóðunum eða NATO.“
Benti hún á svo á að viðskiptaþvinganir í garð Rússa væru tilkomnar vegna þess að Rússar hefðu ráðist inn í Krímskaga.
„Viðskiptabannið snertir herflutninga sem og það að koma í veg fyrir peningaþvætti ólígarkanna og vina forseta Rússlands. Á móti settu Rússar viðskiptabann á vörur frá Íslandi, ekki síst matvæli. Það er auðvitað miður en það verður líka að vera alveg skýrt í svona ferð, sem ég vona að opni dyr fyrir okkar frábæru íslensku útflutningsvörur, að við gerum það ekki á grunni þess að brjóta prinsipp í vestrænu samstarfi sem byggja undir lýðræði, lýðréttindi og mannréttindi. Það verður að vera alveg skýrt af hálfu okkar Íslendinga.“
Að síðustu hæddist hún svo að Mjólkursamsölunni. „Það er síðan kaldhæðnislegt, virðulegi forseti, að í föruneyti ráðherra, vel að merkja í ferð til að opna á viðskiptafrelsi, er íslenskt einokunarfyrirtæki á mjólkurmarkaði. Það fyrirtæki þyrstir eðlilega í útrás, viðskiptafrelsi o.s.frv., en á sama tíma berst það fyrirtæki hatrammlega gegn innflutningi og samkeppni hér heima fyrir — með dyggum stuðningi ríkisstjórnarflokkanna og reyndar Miðflokksins líka.“