Ekki bjartsýn á að áfengisfrumvarp verði samþykkt

Í dag fara fram umræður á Alþingi um frumvarp Þorsteins Víglundssonar, þingmanns Viðreisnar, til breytinga á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og meðflutningsmaður frumvarpsins, segist ekki bjartsýn á að málið komist í aðra umræðu.

Þorgerður Katrín segir í samtali við Fréttablaðið að hún sé ekki bjartsýn á að málið komist í aðra umræðu á meðan þeir flokkar sem nú sitji í ríkisstjórn starfi saman. Það sé þrátt fyrir nýjar áherslur frumvarpsins, t.a.m. að samhliða afnámi einkaleyfis ríkisins á smásölu áfengis verði framlög af fjárlögum til lýðheilsusjóðs stórlega aukin með það að markmiði að efla forvarnir og fræðslu. Þá kveði frumvarpið á um að heimilt verði að auglýsa áfengi, en þó með þeim takmörkunum að slíkar auglýsingar megi aldrei beinast að ungmennum.

Fréttablaðið greinir frá því að svipuð frumvörp hafi verið lögð fram í gegnum tíðina en að ekkert þeirra hafi komist í aðra umræðu. Þorsteinn lagði fram svipað frumvarp fyrir tveimur árum á síðasta löggjafarþingi. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur auk þess fjórum sinnum lagt fram áfengisfrumvarp og var slíkt lagt fram fyrsta sinni af Vilhjálmi Egilssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, árið 2001.