„Að hluta til þykir mér alltaf vænt um minn gamla flokk og ég veit ekki hvort ég eigi að vera mikið að tjá mig en ég hef náttúrulega miklar og sterkar skoðanir á þessu. Mér finnst greinin hans Halldórs [Blöndal í Morgunblaðinu í fyrradag], hún segir mjög mikið um ástandið innan Sjálfstæðisflokksins. Ég er sammála því sem sagt hefur verið, til dæmis að Bjarni er fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur ekki Morgunblaðið. Við verðum að átta okkur á því að allir formenn Sjálfstæðisflokksins hafa alltaf verið með Morgunblaðið með sér í liði, það er ekki þannig með núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins.“
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins um sinn gamla flokk í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar er hún gestur Sigmundar Ernis ásamt Ágústi Ólafi Ágústssyni, þingmanni Samfylkingarinnar.
Í þættinum ræða þau meðal annars klofninginn sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur frammi fyrir, þar sem svo virðist vera sem nokkurs konar Miðflokks öfl séu að verða til. Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur til að mynda farið mikinn í gagnrýni sinni í garð flokksins að undanförnu og að sama skapi hrósað Miðflokknum í hástert fyrir andstöðu sína gagnvart innleiðingu þriðja orkupakkans. Líkt og Þorgerður Katrín minnist á er Halldór Blöndal, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn Davíðs, á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt óvægin skrif Davíðs.
„Það er ákveðinn armur, Miðflokks armur Sjálfstæðisflokksins sem er að reyna að knýja Sjálfstæðisflokkinn, og hann hefur að hluta til tekið þau skref meira til hægri, meira inn í daður við ákveðinn popúlisma, einangrunarhyggju og svo framvegis,“
segir Þorgerður Katrín um þessa þróun innan Sjálfstæðisflokksins.
Hún nefnir þriðja orkupakkann sem dæmi. „Af hverju í ósköpunum var ríkisstjórnin svona lengi að koma með málið fram? Það var út af því að það voru innanborðs átök í Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn hafði ályktað á landsfundi ýmislegt gegn orkupakkanum en eftir stendur að Sjálfstæðisflokkurinn dró lappirnar, tók ekki slaginn fyrr en eiginlega of seint að mínu mati. [Sjálfstæðisflokkurinn] nýtur til þess stuðnings núna að við í Viðreisn og Samfylkingunni og Pírötum, við munum styðja þau sem best má vera til þess að koma málinu í gegn.“
„Það er greinilegt að það er mikill þungi innan flokksins við það hvert flokkurinn á að fara. En ég segi að það er margt af góðu fólki og það er mjög gott að vinna með mjög mörgum innan Sjálfstæðisflokksins og það er mikilvægt að svo verði áfram, að það sé fólk sem hægt er að tala við. Davíð ætti bara að drífa sig yfir í Miðflokkinn,“ segir Þorgerður Katrín.
Nánar er rætt við Þorgerði Katrínu og Ágúst Ólaf í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.