Þorgerður katrín á þjóðbraut

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra mætir til Páls Magnússonar á Þkjóðbraut í kvöld og fer yfir pólitíska sviðið.

Þorgerður Katrín talar um afdrif Evrópusinna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, afstöðu sína til flokksins og Viðreisnar og hugsanlega endurkomu sína í íslenska pólitík.

Þjóðbraut er frumsýnd klukkan 21:00 í kvöld og endursýnd strax klukkan 23:00.