Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra lýsir yfir efasemdum sínum um að hún snúi sér aftur að stjórnmálum.
\"Ég hef minni áhuga núna en ég hafði fyrir einu eða tveimur árum\". Þetta sagði hún þegar Páll Magnússon spurði hana í þættinum Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld hvort hún væri á leiðinni aftur í pólitík - annaðhvort undir merkjum Viðreisnar eða Sjálfstæðisflokksins.
Í þættinum, sem hægt er að sjá hér á hringbraut.is fór hún yfir sína sýn á síðasta landsfund Sjálfstæðisflokksins og þakkaði þar sínum sæla fyrir að flokkurinn hefði færst nær frjálslyndi en íhaldsemi, þótt vissulega væri þar enn verk að vinna.