Fjárhagur Þorgerðar Erlingsdóttur breyttist mjög til hins verra eftir að hún sótti um leiðréttingu ríkisstjórnarinnar, og fékk. Þar með missti hún vaxtabætur sem hafa skaðað fjárhag hennar umtalsvert.
Þorgerður er bitur vegna þessa og segir leiðréttinguna reynast sér verulega þung og staða hennar sé mun verri eftir en fyrir.
Meira en tuttugu prósent færri fá vaxtabætur nú en á síðasta ári og er Þorgerður í þeim hópi. Hún rekur raunarsöguna sína í Þjóðbraut í kvöld.