StaksteinarMorgunblaðsins, þar sem mögulegt er að Davíð Oddsson ritstjóri haldi á penna, segja að ef Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi ætli að stofna fjölmiðil fyrir greiðslur úr ríkissjóði til Sósíalistaflokksins þá ætti hann að byrja á að borga til baka það sem gjaldþrot Fréttatímans kostaði.
„Þrátt fyrir að Sósíalistaflokkurinn hafi ekki náð mönnum inn á þing í alþingiskosningum laugardagsins mun flokkurinn fá framlög úr ríkissjóði næstu fjögur ár, líklega um 30 milljónir króna á ári eða um 120 milljónir á kjörtímabilinu, í samræmi við fylgið sem flokkurinn fékk í kosningunum, 4,1 prósent,“ segir í Staksteinum.
Gunnar Smári hefur gefið út að féið verði notað til að gefa út róttækan fjölmiðil. „Við ætlum að byggja upp fjöl-miðla til að styrkja rödd hinna fátæku og kúguðu,“ er vitnað í Gunnar Smára.
„Gæti ekki farið vel á því að hinir fátæku og kúguðu byrjuðu á því að borga til baka milljónatugina sem þeir hlupu frá síðast þegar Fréttatíminn þeirra fór á hausinn?,“ segir í Staksteinum.
Þrátt fyrir að vitnað sé í Bítið á Bylgjunni þá segir efst í Staksteinum: „Kjarninn, vefsíða sem lengi hefur virst leynilega trúlofuð „RÚV“ í margvíslegu bralli, segir:“
Er vísað til að Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, er reglulegur gestur í þáttum RÚV og að starfsmenn hafi farið á milli miðlanna.
Þórður Snær svarar þessu á Twitter og segir þetta furðulega pillu: „Þeir eru hressir nafnlausu hatandi litlu kallarnir í Hádegismóum. En þeir eru líka furðulegir. Í dag er Gunnar Smári og nýting hans ríkisstyrk skotmarkið. En samt er mynd af mér og furðuleg pilla efst. Frá Mogganum sem er búinn að fá 182 milljónir úr ríkissjóði a 2 árum.“