Þórður Snær spyr seðlabankastjóra: „Hver á að hætta að eyða peningum?“

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, veltir upp þeirri spurningu í nýjum leiðara sínum um hvaða fólk Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, var að tala um þegar hann sagði að Seðlabankinn vildi helst að fólk hætti að eyða peningum í liðinni viku.

Orðin lét Ásgeir Falla í viðtali við RÚV í vikunni í kjölfar stýrivaxtahækkana upp í 5,5 prósent.

„Ásgeir var vænt­an­lega ekki að tala við þann rúm­lega þriðj­ung heim­ila í land­inu sem átti ekk­ert eftir í vesk­inu í lok mán­aðar fyrir þessa miklu vaxta­hækk­un.

Hann var varla að tala við þá sem búa þegar við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað (greiddu meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínu í að halda þaki yfir höf­uð­ið) sem varð enn meira íþyngj­andi eftir nýj­ustu vaxta­hækkun Seðla­bank­ans.

Fólkið sem býr við næstum tveggja stafa verð­bólgu og hefur séð mat, þjón­ustu, elds­neyti og aðrar lífs­nauð­synjar hækka gríð­ar­lega það sem af er ári,“ segir Þórður Snær meðal annars í leiðara sínum.

Þórður bætir við að Ásgeir hafi sennilega ekki heldur verið að tala við fólki sem hann seldi fyrir tveimur árum að lágvaxtarumhverfið væri komið til að vera og að verðtryggingin myndi deyja.

„Það sem keypti sér íbúð á þessu tíma­bili gríð­ar­legra verð­hækk­ana, sem eiga rætur sínar að rekja í aðgerðum Seðla­bank­ans og stjórn­valda, með því að rétt slefa yfir greiðslu­mat ein­ungis til að fá mestu vaxta­hækkun hins vest­ræna heims í and­litið til að éta upp allt þeirra fjár­hags­lega svig­rúm.“

Að sögn Þórðar er Ásgeir sennilega ekki heldur að tala við fólkið sem þarf nú, vegna takmarkana sem Seðlabankinn innleiddi á lántöku húsnæðislána, að taka verðtryggð lán á tveggja stafa raunvöxtum vilji það tryggja sér öruggt þak yfir höfuðið.

„Þessi hópur getur beðið með líf­ið, að minnsta kosti þar til að það passar inn í seðla­banka­stjóra­leik­inn sem Ásgeir er að leika,“ segir Þórður jafnframt og bætir við að kannski hafi Ásgeir verið að tala við millistétt landsins. Hann þurfi þó að hafa í huga að staða þeirra hafi gjörbreyst á nokkrum mánuðum.

„Hann getur því gengið að því vísu að svig­rúm margra innan milli­stétt­ar­innar til að eyða um efni fram er að mestu horfið með verð- og vaxta­hækk­un­um. Og andað létt­ar.“

Þórður telur öruggt að Ásgeir hafi ekki beint orðum sínum að ríkustu tíu prósent þjóðarinnar. „Þorri þess hóps býr enda ekk­ert í krónu­hag­kerfi Ásgeirs.“

Þórður heldur áfram: „Nei, vaxta­hækk­an­ir, tak­mark­anir og hvatn­ing­ar­orð Ásgeirs bein­ast að heim­ilum ann­ars vegar og litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum hins veg­ar.“

Leiðara Þórðar er hægt að lesa í heild sinni hér.