Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í borgarstjórn að bakreikningur Sorpu upp á tæplega 1,4 milljarð sé ekki eitthvað sem hægt sé að sópa undir teppið, við honum þurfi að bregðast. Segir hún bakreikninginn „óþolandi.“
„Bakreikningur upp á tæplega 1.4 milljarð vegna mistaka er ekki eitthvað sem hægt er að sópa undir teppið, við því þarf að bregðast. Í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjóra Sorpu sem birtist í gær kemur fram að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, í byggðasamlagi Sorpu, fái nú afar háan bakreikning vegna vanáætlana og mistaka,“ segir Þórdís Lóa.
Hún segir að svona lagað eigi ekki að geta gerst. „[E]n ég er því miður ekki hissa. Kerfið sem sveitarfélög um allt land hafa komið sér upp, svokölluð byggðasamlög, eru að mínu mati óskiljanlegt fyrirbæri sem klífur ábyrgð og ákvarðanatöku í sundur. Ákvarðanataka og framkvæmd verða að taka mið af hlutverki, ábyrgð og umboði, sem er tilfellið hjá Sorpu. Mistök geta gerst en þegar um er að ræða fjárhæðir eins og þessa þarf að staldra við og leita skýringa. Svo er hægt að meta næstu skref.“
„Það er ljóst að eigendur og útsvarsgreiðendur eiga það skilið að mistök sem þessi séu tekin alvarlega og allra leiða leitað til að tryggja að slíkt geti ekki endurtekið sig,“ bætir Þórdís Lóa við.
Hún segir að með þessu setji Sorpa ábyrgðina yfir á sveitarfélögin:
„Nú fá sveitarfélögin háan bakreikning sem á að fjármagna með lántöku og tryggingu sveitarfélaga. Á sama tíma fjárfestum við í skólum. leikskólum, íþróttamannvirkjum og samgöngum en nú er skuldastaða sveitarfélaganna sett í uppnám og framkvæmdaaðili setur ábyrgðina yfir á sveitarfélögin.“
Munu krefjast skýringa
Þórdís Lóa segir að ekki sé hægt að leiða þetta hjá sér. „[U]pphæð af þessari stærðargráðu mun setja langvarandi fótspor á fjármál sveitarfélaganna. Borgarráð mun fá framkvæmdastjóra og stjórnarformann Sorpu á fund í vikunni og krefjast skýringa. Viðreisn hefur frá upphafi sett almannahagsmuni framar sérhagsmunum og það verður haft að leiðarljósi í þessu máli eins og öðrum.“
„Viðreisn í Reykjavík lagði ríka áherslu á að lækka skuldir borgarinnar og gerir fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar ráð fyrir því ásamt aukinni fjárfestingu í grunnþjónustu. Til að það sé mögulegt verður að vera hægt að treysta fyrirtækjum til að áætla og vinna sína vinnu vel. Að það sé ekki hægt er hreinlega ólíðandi,“ segir hún að lokum.