Þórdís lóa með þátt á hringbraut

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður Félags kvenna í atvinnulífinu hefur tekið að sér að stýra nýjum þætti um samfélagsmál á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem ber nafnið Sjórnar og verður fyrsti þátturinn, sem fjallar um erfðarmál, frumsýndur klukkan 21.00 í kvöld, en þættirnir verða á fimmtudögum fram á vor. Þeir eru unnir í samstarfi við upplýsingaveituna spyr.is sem hefur þegar getið af sér annan þátt, en er Neytendavaktin sem Rakel Garðarsdóttir stýrir og sýndir eru á þriðjudagskvöldum kl.21.30. Þeir þættir eru byggðir upp á fyrirspurnum lesenda á spyr.is


Þátturinn sem Þórdís Lóa mun stýra tekur á ýmsum samfélagslegum málefnum, sem flest hver hafa mikinn snertiflöt við fólk og heimilin í landinu. Viðmælendur verða margir hverjir úr hópi sérfræðinga, enda málefni um til dæmis fangelsismál og dóma, líkn, erfðarmál, húsnæðismál svo dæmi sé tekið. Þetta er frumraun Þórdísar Lóu í þáttagerð í sjónvarpi, en sjálf segir hún verkefnið: ,,Ég ákvað að slá til  þar sem mér finnst spennandi að taka þátt í uppbyggingu og stjórnun á efni sem snertir okkur landsmenn alla.  Ég mun í þáttunum fjalla um málefni sem snúa að okkur  mannfólkinu  á einum eða öðrum tíma á lífsskeiðinu. Ekki síst finnst mér spennandi að vinna með efni  sem fólkið í landinu hefur spurt um á spyr.is og tengja það við nýja og skemmtilega viðbót í sjónvarpsflórunni sem Hringbraut er.  Þar er  samsafn af reynsluboltum og  nýju þáttagerðafólki á mismunandi aldri sem byggir á fjölbreytni og það er alltaf skemmtilegt og áhugavert.”


Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri spyr.is segir að fyrirspurnargáttin á vefnum hafi kennt starfsmönnum hans að fólk vilji fá að ræða mun fleiri mál en það sem eingöngu kemur fram í fréttum: "Við erum því ánægð með að geta farið lengra með umræðuna sem verið hefur á spyr.is og vitum að Þórdís Lóa mun sinna þessu verkefni af stakri prýði.”