Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á útlendingalögum. Eins og fram kemur á Viljanum er þeim ætlað að bregðast við tilhæfulausum umsóknum og stórfjölgun umsókna almennt sem erfitt hefur reynst að afgreiða. Þá segir að verði frumvarpið að veruleika eigi það að tryggja að framkvæmd þeirra og málsmeðferð þeirra mála sem undir þau falla sé skýr og gagnsæ.
Í frumvarpinu segir að nauðsynlegt sé að bregðast við fjölgun umsókna einstaklinga um alþjóðlega vernd, sem þegar hafa dvalið í öðrum aðildarríkjum Schengen áður en þeir komu til Íslands (e. secondary movement), svo að auka megi skilvirkni við vinnslu mála einstaklinga í þeirri stöðu.
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar er afar ósáttur. Segir Logi að áður en Sigríður Andersen steig til hliðar hafi hún kynnt frumvarp um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd og brottvísunartilskipunin). Logi segir:
„Frumvarpið er afleitt. Það gerir endurupptöku mála enn erfiðari, takmarkar andmælarétt og lögboðinn umhugsunarfrest. Ríkari sönnunarkröfur eru gerðar en umsækjendur fá samt styttri tíma til að afla gagna. Auðvelda á brottvísanir til ríkja á borð við Ungverjaland, sem er þekkt fyrir harðneskjulega meðferð á flóttafólki, og Grikkland sem ræður ekki við þann fjölda sem þangað kemur. Það sem er þó kannski grimmast er að það á að koma í veg fyrir að nánustu aðstandendur kvótaflóttafólks geti fengið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar.“
Kveðst Logi hafa vonað að Þórdís Kolbrún myndi snúa við blaðinu þegar hún tók við af Sigríði Andersen, í það minnsta gera nauðsynlegar breytingar á frumvarpinu sem Logi segir ómannúðlegt. En Þórdís leggur það fram nánast óbreytt. Logi segir að endingu:
„Það er því ekki hægt að kenna einum stjórnmálamanni um harðneskjulega stefnu í útlendingamálum. Flokkslínan virðist skýr. En nú verða Vinstri-græn að tala skýrt líka og leggjast á árar með Samfylkinguna til að koma í veg fyrir að þetta frumvarp verði að lögum.“